Táknræn mynd af vegferð til bættrar andlegrar heilsu – sálfræðiþjónusta Sálfræðiklíníkarinnar í Kópavogi.

Velkomin á

Sálfræðiklíníkina

Á Sálfræðiklíníkinni starfa reyndir og öflugir sálfræðingar sem bjóða upp á einstaklingsviðtöl og hópmeðferðir. Einnig sinna þeir fræðslum og þjónustu fyrir íþróttafélög og fyrirtæki.

Staðsetning

Sálfræðiklíníkin er staðsett í Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi.

Gengið er inn um sérinngang austanmegin við enda hússins.

Opnunartími er milli kl 8 - 17 en hægt er að gefa viðtöl utan þess tíma í samráði við sálfræðing.

Hægt er að bóka viðtal með því að senda á salklin@salklin.is, hjá noona (www.noona.is/salfraediklinikin) eða hér á heimasíðunni okkar.

Bóka viðtal

Viðtöl eru bókuð á heimasíðu okkar, í gegnum noona.is eða með tölvupósti á salklin@salklin.is.

Algengar spurningar

  • Sálfræðiklíníkin býður upp á sálfræðiviðtöl fyrir einstaklinga. Í boði eru bæði viðtöl á stofu og fjarviðtöl, eftir því sem hentar hverju sinni.

  • Hægt er að bóka tíma á þremur vegu:

  • Já. Í boði eru fjarviðtöl hjá sálfræðingum stofunnar þegar það hentar og geta þau verið góður kostur þegar aðstæður kalla á meiri sveigjanleika.

  • Fjarviðtöl og viðtöl á stofu eru sambærileg að upplagi og faglegu innihaldi. Fyrir marga reynast fjarviðtöl jafn áhrifarík og geta verið góður kostur þegar aðstæður kalla á meiri sveigjanleika.

  • Viðtöl eru að jafnaði 50 mínútur að lengd.

  • Já. Trúnaður er grundvallarþáttur í starfi sálfræðinga og gilda skýrar faglegar reglur um trúnað í öllum viðtölum.

  • Verð fyrir viðtöl má finna í bókunarkerfinu, á heimasíðu Sálfræðiklíníkarinnar og á Noona. Þar koma einnig fram upplýsingar um greiðslur og afbókanir.

Neyðartilfelli

Við hvetjum fólk til að hafa samband við bráðamóttöku geðdeildar í síma 543-4050 eða 112 ef vandinn er alvarlegur og þolir enga bið. Einnig má benda á að bæði Píeta síminn (s. 552-2218) og Hjálparsími Rauða krossins (s.1717) eru opnir allan sólarhringinn.